Efnalaugar
Starfsleyfi fyrir efnalaugar
Almennar upplýsingar
Umsækjandi skal beina umsókn sinni til heilbrigðiseftirlits í viðkomandi sveitarfélagi og gefa viðeigandi upplýsingar um sjálfan sig, tegund og umfang starfseminnar. Heilbrigðiseftirlit getur óskað eftir frekari upplýsingum ef þörf krefur.
Almenn ákvæði og gildissvið
Starfsleyfið gildir aðeins í húsnæði og á athafnasvæði sem tilgreind er í starfsleyfinu. Húsnæði skal hafa hlotið samþykki byggingarnefndar í viðkomandi sveitarfélagi.

Þessi umsókn fer til umfjöllunar hjá heilbrigðiseftirliti sveitarfélags. Landinu er skipt í 10 heilbrigðiseftirlitssvæði undir yfirumsjón Umhverfisstofnunar.