Starfsleyfi vegna dýragarða og umfangsmikilla dýrasýninga
Almennar upplýsingar
Umsækjandi skal beina umsókn sinni til heilbrigðiseftirlits í viðkomandi sveitarfélagi og gefa viðeigandi upplýsingar um sjálfan sig, tegund og umfang starfseminnar. Heilbrigðiseftirlit getur óskað eftir frekari upplýsingum ef þörf krefur.
Almenn ákvæði og gildissvið
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemi með dýr
Skilyrði þessi gilda fyrir aðbúnað, aðkomu og öryggi gesta og viðskiptavina í starfsemi vegna
geymslu og umhirðu dýra s.s. dýragæslur, dýralæknastofur, dýrasnyrtistofur, dýraspítala,
gæludýraverslanir og dýragarða og umfangsmiklar dýrasýningar. Starfsleyfið gildir einnig
um mengun frá starfseminni. Starfsleyfið gildir aðeins í húsnæði og á athafnasvæði sem tilgreind er í starfsleyfinu. Húsnæði skal hafa hlotið samþykki byggingarnefndar í viðkomandi sveitarfélagi.

Þessi umsókn fer til umfjöllunar hjá heilbrigðiseftirliti sveitarfélags. Landinu er skipt í 10 heilbrigðiseftirlitssvæði undir yfirumsjón Umhverfisstofnunar.